Óvíst hverjir fá meirihluta í ítölsku þingkosningunum 10. apríl 2006 19:58
Allt stefni í hörkuspennandi lokasprett í ítölsku þingkosningunum en fyrstu tölur benda til þess að stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, haldi naumum meirihluta í báðum deildum þingsins. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. Það var um klukkan eitt í dag að íslenskum tíma sem fyrstu útgönguspár voru birtar og samkvæmt þeim var ólívubandalag Romano Prodis með nauma forystu á hægri fylkingu Berlusconis, forsætisráðherra, eða 49% atkvæða á móti 45%. Þar með virtist sitjandi stjórn fallin. Samkvæmt upplýsingu af vefsíðu ítalska blaðsins Republica nú á áttunda tímanum er búið að telja um þriðjug greiddra atkvæða í neðri deild og bandalag Prodis hefur 49,5% atkvæða en hægri bandalag Berlusconis forsætisráðherra 50%. Í efri deild er búið að telja atkvæði í rúmlega 78% kjördæma og hefur bandalag Prodis 49,8% atkvæða og 151 þingsæti en stjórnarflokkarnir 49,1% atkvæða og 158 þingsæti. Mjórra gæti því varla verið á mununum. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu var kjörsókn um 85%, nokkur meiri á Norður-Ítalíu en í suðurhluta landsins. Minnst var hún á Sikiley og Sardiníu. Talið er að myndun nýrrar ríkisstjórnar verði að bíða fram yfir forsetakosningar í næsta mánuði.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira