Chirac skarst í leikinn 10. apríl 2006 19:02 Jacques Chirac lét Dominque du Villepin drekka beiskan kaleik í dag MYND/AP
Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique du Villepin forsætisráðherra þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg. Verkföll, mótmæli og uppþot hafa sett svip sinn á franskt þjóðfélag undanfarnar vikur eftir að ríkisstjórnin gerði breytingar á atvinnulöggjöf landsins til að auka hreyfanleika á vinnumarkaði. Andstæðingar þeirra bentu hins vegar á að í skjóli laganna væri atvinnurekendum gert auðveldara að reka ungt fólk úr vinnu án skýringa. Engin lausn virtist í sjónmáli á þessari erfiðu deilu, þar til í morgun þegar Jacques Chirac forseti kallaði ríkistjórnina á sinn fund og sagðist ætla að nema lögin úr gildi. Í staðinn verður gripið til annarra aðgerða til að vinna bug á atvinnuleysi ungmenna. Dominque de Villepan forsætisráðherra fékk það verkefni að greina frá ákvörðuninni. Enginn hefur barist harðar fyrir lögunum en Villepin og því hlýtur ákvörðun Chiracs að vera honum reiðarslag. Segja má að hann hafi lagt pólitískt líf sitt að veði fyrir lögin og nú þegar vinsældir hans hafa hrapað úr 49 prósentum í 25 hlýtur framtíð hans að vera óljós. Innan við ár er liðið síðan Chirac losaði sig við Jean-Pierr Raffarin, forvera Víllpans, eftir að Frakkar höfnuðu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvort sömu örlög bíða Villepins nú ræðst væntanlega á næstu dögum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Loðna fundist á stóru svæði Innlent Maðurinn er fundinn Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira