Erlent

Mun líklega velta Berlusconi úr sessi

MYND/AP

Þingkosningar halda áfram á ítalíu í dag en kjörstöðum verður lokað klukkan eitt eftir hádegi að íslenskum tíma. Talið er að kosningabandalag Romanos Prodis, forsætisráðherraefnis vinstri flokkanna, muni sigra Berslusconi, forsætisráðherra Ítalíu. Reynist það rétt bíður hans erfitt verkefni. Á vinstri væng þyrfti hann að mynda bandalag sem samanstendur af mörgum fylkingum, allt frá hörðum kommúnistum til hófsamra kaþólskra miðjumanna. Margir hafa bent á að það eina sem bindi þessi öfl saman sé hatur beggja á Berlusconi. Einnig hefur því verið spáð að komist vinstrimenn til valda muni þeir setja lög um hagsmunaárekstra, og þannig hrekja Berlusconi sem er umsvifamikill á mörgum sviðum efnahagslífsins, úr stjórnmálum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×