Erlent

Tvær palestínskar konur særðust alvarlega

Palestínskur piltur borinn til grafar í Nablus í dag en hann særðist í árásum Ísraelshers í bænum í síðustu viku.
Palestínskur piltur borinn til grafar í Nablus í dag en hann særðist í árásum Ísraelshers í bænum í síðustu viku. MYND/AP

Tvær palestínskar konur særðust alvarlega í áhlaupi ísraelska hersins í bænum Nablus á Vesturbakkanum í dag. Ísraelar töldu að eftirlýstir öfgamenn dveldu í bænum og því réðist herinn til atlögu. Íbúar bæjarins vörpuðu grjóti að hermönnum sem svöruðu með skothríð. Þá féll þrítugur Palestínumaður á Gaza-ströndinni í dag eftir að Ísraelsher gerði stórskotaliðsárás á palestínska varðstöð. Alls hafa fimmtán Palestínumenn fallið í árásum Ísraela síðan á föstudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×