Bandaríkjamenn afsali sér yfirstjórn öryggismála 27. mars 2006 19:15
Ríkisstjórn Íraks krefst þess að Bandaríkjamenn afsali sér yfirstjórn öryggismála í hendur Íraka og héraðsstjórinn í Bagdad er hættur allri samvinnu við Bandaríkjamenn. Íraskir og bandarískir hermenn felldu um tuttugu manns við mosku, í borginni, í gær. Mikið blóðbað var í Írak um helgina og í dag. Mikill mannfjöldi var í dag viðstaddur útför tuttugu manna sem skotnir voru í eða í grennd við Mústafa moskuna í shíahverfi í Bagdad. Fólkið var mjög reitt og hrópaði ókvæðisorð um Bandaríkjamenn. Óljóst er hvað gerðist eiginlega í moskunni, í gærkvöldi. Bandaríkjamenn segja að íraskir sérsveitarmenn, undir leiðsögn bandarískra foringja hafi ráðist til inngöngu í hús sem ekki tilheyrði henni, eftir að skotið var á þá. Í bardaganum sem á eftir fylgdi hafi sextán uppreisnarmenn skotnir til bana, og fimmtán eða sextán handteknir. Á fundi með fréttamönnum, í dag, sögðu hinsvegar talsmenn ríkisstjórnar sjía múslima að ráðist hefði verið inn í moskuna og tuttugu menn skotnir með köldu blóði. Bandaríkjamenn hafa ekki brugðist beint við þessum ásökunum. Jawad Al Maliki, talsmaður ríkisstjórnarinnar og náinn samstarfsmaður Ibrahims al-Jafaris, forsætisráðherra, sagði að stjórnin krefðist þess að bandaríkjamenn afsöluðu sér yfirstjórn öryggismála í landinu, þeir hafi gert alltof mörg meiriháttar mistök. Bandaríkjamenn hafa heldur ekki svarað þeirri kröfu. Trúflokkaátök milli sjía og súnní múslima virðast halda áfram. Í gær fundust tugir líka, sum höfuðlaus, í grennd við Bagdad. Í dag létust svo að minnsta kosti fjörutíu manns í sjálfsmorðssprengjuárás á lögreglustöð í Mósul.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Sjá meira