Erlent

Refsiaðgerðir boðaðar

Úrslit forsetakosninganna í Hvíta-Rússlandi á sunnudaginn hafa vægast sagt valdið ólgu en stjórnarandstaðan í landinu og erlendir kosningaeftirlitsmenn telja fullvíst að Alexander Lúkasjenkó, sitjandi forseti, hafi þar haft rangt við. Síðan um helgina hafa mótmælendur hafst við á Október-torginu í höfuðborginni Minsk en slíkar samkomur hafa hingað til verið bannaðar með öllu. Þessi vermir reyndist hins vegar skammgóður því í nótt leysti öryggislögreglan KGB upp mótmælin og tók forsprakka þeirra fasta. Eins og nærri má geta vakti gjörningurinn litla lukku í röðum stjórnarandstæðinga.

Ólgan í Hvíta-Rússlandi teygir sig út fyrir landsteinana því í dag lét Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands þá skoðun sína í ljós að Öryggissamvinnustofnun Evrópu ÖSE hefði hellt olíu á eldinn með því að lýsa því yfir að kosningarnar væru ólöglegar áður en þær voru haldnar. Hinum megin Atlantshafsins sagði Scott McClellan talsmaður Hvíta hússins að refsiaðgerðir væru í bígerð gegn stjórnvöldum í Minsk og í Brussel samþykkti leiðtogaráð Evrópusambandsins ályktun um svipað efni.

Í bili verður látið nægja að neita hvítrússneskum embættismönnum um vegabréfsáritanir til Evrópu og Bandaríkjanna. Hvort Lúkasjenkó og félagar hans láti segjast við þetta á eftir að koma í ljós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×