Innlent

Páfagaukur talinn hafa sýkt hjón

Mögulegt er að sýking úr páfagauki hafi orðið til þess að hjón frá Akureyri veiktust alvarlega. Páfagaukaveiki er þekktur sjúkdómur sem hefur valdið fólki bana.

Það var í lok janúar sem fjölskylda á Akureyri ákvað að festa kaup á páfagauki fyrir hartnær 300.000 krónur. Fuglinn gladdi eigendur sína en aðeins um skamma hríð. Eftir nokkrar vikur drapst fuglinn, og upp úr því fóru hjónin að kenna sér meina. 40 stiga hiti fylgdi veikindunum, þau þornuðu upp, ónæmiskerfið hrundi og lungnabólga kom upp. Héldu hjónin að inflúensu væri um að kenna. Loks var ástandið orðið svo alvarlegt að þau væru bæði lögð inn á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Þau fengu sýklalyf sem gerðu sitt gagn og eru útskrifuð í dag, en þó ekki orðin fullfrísk.

Grunur kviknaði um að páfagauknum gæti verið um að kenna, en páfagaukaveiki er þekktur en mjög sjaldgæfur sjúkdómur sem getur smitast frá fuglum til manna. Hann smitast ekki manna á millum en einkenni sjúkdómsins eru að hluta þau sömu og fyrr er lýst.

 

Páfagaukaveiki, psittacosis á latínu, sem einnig hefur verið kölluð fýlaveiki, er bakteríusýking sem getur valdið bana. Veikinnar varð vart á Íslandi á fjórða áratug 20. aldar en þá komust fýlar í tæri við sýkta páfagauka og fluttu með sér bakteríuna til Íslands með þeim afleiðingum að nokkrir veiktust en enginn dó. Frændur okkar Færeyingar sluppu ekki jafn vel. Þar dóu 32 úr páfagaukaveiki á þessum tíma.

Tekið skal fram að páfagaukaveiki á ekkert skylt við fuglaflensu. En þekkt er að gæludýr geti smitað eigendur sína af ýmsum sjúkdómum svo sem salmonellu. Þar má nefna dýr eins og hunda, ketti, eðlur og froska en það þarf ekki fuglaflensu til að páfagaukar geti verið varasamir. Líkurnar á smiti eru þó ekki miklar og skal áréttað að þetta mál er ekki fullrannsakað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×