Herirnir sagðir á heimleið 5. mars 2006 14:00 Bandarískur hermaður stendur vaktina í Bagdad. MYND/AP
Innan árs verða allar breskar og bandarískar hersveitir kallaðar heim frá Írak að því er breska blaðið Sunday Telegraph hermir. Sveitirnar eru sagðar vera helsta ljónið á vegi til friðar í landinu. Blaðið hefur þessar upplýsingar frá háttsettum embættismönnum úr breska landvarnaráðuneytinu en að því er hann segir eru þessar hugmyndir runnar undan rifjum Breta. Þær ganga í stuttu máli út á að næstu tólf mánuði verði smátt og smátt fækkað í 138.000 manna herliði Breta og Bandaríkjamanna í Írak en þess verður svo kallaður heim samtímis að loknu þessu tímabili. Telegraph segir helstu ástæðuna fyrir þessum bollaleggingum vera þá að æ fleiri séu að komast á þá skoðun að öryggisástandið í Írak sé svo slæmt beinlínis vegna erlenda herliðsins, ekki þrátt fyrir veru þess. Í staðinn munu íraskar hersveitir, en í þeim eru nú um 230.000 hermenn, taka við öryggisgæslu í landinu. Auk bandaríska og breska herliðsins eru um 15.000 hermenn frá 24 löndum í Írak og þeir munu sömuleiðis halda heim á næstu misserum, að því er Telegraph hermir. Fullvíst má telja að aðstæður heima fyrir eigi stóran þátt í að bandarískir og breskir ráðamenn séu í þessum hugleiðingum því stríðsreksturinn er afar óvinsæll í báðum þessum ríkjum. Vinsældir þeirra George Bush Bandaríkjaforseta og Tony Blair forsætisráðherra Bretlands hafa dalað verulega; tæplega 2.400 bandarískir og breskir hermenn hafa látið lífið og hernámið hefur kostað skattgreiðendur þessara landa átján þúsund milljarða króna.
Erlent Fréttir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York Sjá meira