Björgunarmenn í lífshættu á Hofsjökli 26. febrúar 2006 19:17
Tugir manna tóku þátt í björgunaraðgerðunum á Hofsjökli í gærkvöld, við afar erfiðar og lífshættulegar aðstæður. Um þrjú hundruð björgunarsveitamenn voru kallaðir til vegna slyssins, auk lögreglu, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Björgunarmenn voru í lífshættu allan tímann, enda margar sprungur á svæðinu og að þeirra sögn brotnaði stundum undan fótum manna og þeir horfðu ofan í hyldýpið. Rúmlega tvítugur maður lést þegar jeppabifreið fór ofan í sprungu á Hofsjökli um miðjan dag í gær. Annar maður á svipuðum aldri sem var í bílnum, slasaðist alvarlega og liggur enn á gjörgæslu en líðan hans er stöðug að sögn lækna. Mennirnir voru á leið norður yfir Hofsjökul á breyttum Toyota pallbíl, -í samfloti við tvo aðra jeppa. Veður var gott og ágætis skyggni. Leiðangurinn var kominn vel inn á jökulinn, en hefur af einhverjum ástæðum farið út af hinni venjulegu leið og inn á sprungusvæði rétt norðan við Hásteina. Þar brast haft yfir sprungu þannig að jeppinn féll ofan í sprunguna og stöðvaðist á um þrjátíu metra dýpi. Ferðafélagarnir brugðust hárrétt við slysinu, -héldu kyrru fyrir og hringdu í Neyðarlínu með NMT-símum og biðu átekta. Þetta var uppúr klukkan þrjú í gær. Björgunarsveitir voru strax kallaðar út, frá Norðurlandi, Suðurlandi, -og af höfuðborgarsvæðinu. Strax varð ljóst að nausyn væri á þyrlum við björgunina. Þyrla frá danska varðskipinu Triton, var fyrst á staðinn. Hún fór úr Reykjavík með tvo menn frá slökkviliðinu og einn frá Landsbjörgu. Þá voru einnig kallaðar til þyrlur frá varnarliðinu, en báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar voru fjarri góðu gamni. Björgunarmenn þurftu að síga um þrjátíu metra niður í sprunguna til að ná til mannanna þar sem þeir voru fastir í jeppa sínum. Jeppinn var mjög illa skemmdur eftir fallið og þurftu björgunarmenn að beita klippum til að skera hann sundur svo hægt væri að ná mönnunum út. Þeir voru síðan hífðir upp úr sprungunni og sá slasaði fluttur með þyrlu til Reykjavíkur. Hún lenti við Landspítalann í Fossvogi laust fyrir klukkan eitt í nótt. Tugir manna tóku þátt í björgunaraðgerðunum á Hofsjökli í gærkvöld, við afar erfiðar og lífshættulegar aðstæður. Um þrjú hundruð björgunarsveitamenn voru kallaðir til vegna slyssins, auk lögreglu, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Meðal þeirra sem komu fyrstir á slysstað með dönsku þyrlunni voru þeir Ari Jóhannes Hauksson, sem stjórnaði aðgerðum við sprunguna á Hofsjökli, og Guðmundur Guðjónsson sem seig niður í að bílnum í sprungunni. Þeir segja að björgunarmenn hafi verið í lífshættu allan tímann, enda margar sprungur á svæðinu og stundum hafi brotnað undan fótum manna og þeir horft ofan í hyldýpið.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira