Excel Airways leigir átta nýjar vélar 23. febrúar 2006 11:15
Excel Airways, dótturfélag Avion Group, gekk í dag frá samningi við General Electric Capital Aviation Services (GECAS) um leigu á tveimur nýjum Boeing 737-900ER (Extended Range) sem verður sett á markað af Boeing verksmiðjunum á næsta ári og tveimur Boeing 737-800 sem verða afhentar á öðrum ársfjórðungi 2007. Að auki hefur verið gengið frá samningum um afhendingu fjögurra Boeing 737-800 véla á fyrstu sex mánuðum ársins 2007, tvær frá ILFC (International Lease Finance Corporation) og tvær frá RBS (Royal Bank of Scotland). Allar vélarnar eru leigðar til átta ára. Þetta er hluti af endurnýjun flota Avion Group. Samninginn í dag undirrituðu Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, Michael O´Shea, framkvæmdastjóri hjá GECAS, og Marlin B. Daily, sölustjóri Boeing í Evrópu. Vélarnar tvær verða afhentar Excel Airways í maí 2008. Í tilkynningu segir að nýju vélarnar passi mjög vel við Boeing 737-800 flota félagsins; meðal annars sé hægt að samnýta 98% af öllum varahlutum í flugvélarnar. Nýju vélarnar leysa af hólmi eldri og óhagkvæmari Boeing 757-200 vélar, sem hætt er að framleiða. Floti Excel Airways samanstendur af 17 farþegavélum en yfir sumartímann eru um 30 flugvélar í rekstri hjá félaginu. Hin nýja Boeing 737-900ER tekur 215 farþega og hefur flugdrægi upp á tæpa 4,000 kílómetra, full af farþegum og frakt. Til samanburðar tekur Boeing 737-800 mest 189 farþega og Boeing 757-200 mest 233 farþega. Hagkvæmari hreyflar og aðrar nýjungar í framleiðslu gera Boeing 737-900ER einstaklega sparneytna. Excel Airways mun nota þessar nýju vélar á flugleiðum félagins frá London Gatwick og Manchester í Bretlandi til áfangastaða á Kanaríeyjum, Suður-Evrópu og við Miðjarðarhafið. Áfangastaðir félagsins eru nú í kringum fimmtíu í Evrópu og Mið-Austurlöndum frá um tíu flugvöllum innan Bretlands. Farþegar Excel Airways Group voru rúmlega þrjár milljónir á síðasta ári. Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, segir að Boeing 737-900ER vélarnar séu mjög hagkvæmar og bæti enn frekar þjónustu Excel við viðskiptavini sína. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var viðstaddur undirskrift samningsins þegar hann heimsótti höfuðstöðvar Excel Airways í Crawley í dag. Einnig voru höfuðstöðvar Travel City, dótturfélags Excel Airways opnaðar formlega. Travel City sérhæfir sig í sölu pakkaferða til Flórída og er stærsta félagið sinnar tegundar í Bretlandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira