Erlent

Brown braut ekki höfundarlög með Da Vinci lyklinum

Bandaríski rithöfundurinn Dan Brown braut ekki höfundarréttarlög við ritun bókar sinnar Da Vinci lykillinn. Dómstóll í Lundúnum komst að þessari niðurstöðu í gær eftir að hafa fjallað um ásakanir tveggja breskra rithöfunda um ritstuld. Þeir skrifuðu fyrir tæpum aldarfjórðungi bók sem byggð er á svipaðri fléttu og Da Vinci lykillinn og því þótti þeim á sér brotið. Ef dómurinn hefði fallið á aðra leið hefði frumsýning kvikmyndar byggðri á bókinni að líkindum frestast um óákveðinn tíma en nú virðist ekkert standa í vegi fyrir að hún verði frumsýnd eftir mánuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×