Vill grunnfjarskiptakerfi Símans aftur í eigu þjóðarinnar 27. september 2006 21:10 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri-grænna, í ræðustól á Alþingi. MYND/Pjetur
Taka á grunnfjarskiptakerfi Símans og setja það aftur í eigu þjóðarinnar aðeins þannig verður þjónustan ódýr og best. Þetta segir Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri-grænna, en GSM símakostnaður Íslendinga hefur hækkað undanfarin ár á meðan hann hefur lækkað á Norðurlöndunum. Nýr samanburður póst- og fjarskiptastofnana á Norðurlöndunum sýnir að kostnaður við gsm símtöl hefur farið lækkandi á Norðurlöndunum frá árinu 2002, nema á Íslandi sem og að notkunin hefur aukist allsstaðar nema á Íslandi. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri-grænna, segir það ekki koma á óvart að verðið rjúki upp hér á landi en á meðan að Síminn hafi verið í eigu þjóðarinnar hafi verð á símtölum verið einna lægst hér á landi samanborið við það sem gerist á Norðurlöndunum og jafnvel þó víðar væri leitað. Jón segir að við einkavæðingu og sölu Símans hafi skapast fullkomin fákeppni ,, og jafnvel einokunarstaða á mörgum vettvöngum þjónustu hans. Afleiðingar hennar eru kunnar, lokun starfstöðva vítt og breitt um landið.” Jón segir þjónustu við viðskiptavini hafa verið skerta. Aukinn kostnað við símtöl megi rekja til þess að fyrirtækið sé nú fyrst og fremst rekið á arðsemisgrunni en ekki sem þjónstufyrirtæki. ,, Vinstri-grænir vöruðu við þessu og lögðust alfarið gegn einkavæðingu Símans, að minnsta kosti grunnfjarskiptakerfi hans,” segir Jón og jafnframt að allt sé nú að koma fram sem þeir vöruðu við, það er einokun, fákeppni og hækkað verð. Póst- og fjarskiptastofnunin segir fákeppni einkenna íslenska markaðinn og bindur vonir við að fleiri fyrirtæki komi inn á markaðinn. Jón segir ljóst að þessi samkeppni sem um sé að ræða geti í hæsta lagi orðið á allra þéttbýlasta svæðinu á suðvesturhorni landsins. Jón vill að grunnfjarskiptakerfi Símans verið tekið aftur og lagt undir þjóðina ,, við rekum það sem öfluga samfélagsþjónustu sem allir eiga jafnan aðgang að, þá verður þjónustan bæði ódýr og best.“ Hann segir ljóst að Vinstri-grænir komi til með að taka málefni Símans upp á Alþingi þegar þing hefst á ný.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira