Al-Maliki verður forsætisráðherra 22. apríl 2006 19:20
Vonast er til að fjögurra mánaða stjórnarkreppa í Írak sé á enda eftir að samkomulag náðist um hver tæki við embætti forsætisráðherra landsins. Jalal Talabani var endurkjörinn forseti á íraska þinginu í dag. Fjórir mánuðir eru síðan þingkosningar voru haldnar í Írak en þrátt fyrir það hefur þingið aðeins komið einu sinni saman. Stjórnarkreppa hefur ríkt í landinu og hafa vandræðin á stjórnmálasviðinu síst orðið til að efla stöðugleikann í samfélaginu, enda rambar þjóðin á barmi borgarastyrjaldar. Eitt helsta ljónið í veginum fyrir myndun ríkisstjórnar hefur verið óánægja Kúrda og súnnía með Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra sem leiddi fylkingu heittrúaðra sjía til sigursí kosningunum. Þar til í gær var Jaafari ófáanlegur til að láta af embætti en samkomulag hefur náðst um að félagi hans úr Dawa-flokknum, Jawad al-Maliki, verði forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn. Stjórnmálaskýrendur segja skoðanir þeirra Jaafari og Maliki um flest svipaðar en sá síðarnefndi er talinn ákveðnari til verka, allt að því harðlínumaður. Hans bíður erfitt verk að sannfæra sjía og Kúrda um að hann verði forsætisráðherra allrar þjóðarinnar, en ekki bara sjía. Til að hægt væri að fela Maliki umboð til stjórnarmyndunar varð að kalla þing saman í dag svo það gæti framlengt kjörtímabil Kúrdaleiðtogans Jalal Talabani, sitjandi forseta landsins. Súnníar fengu aftur á móti embætti þingforseta í sinn hlut. Erfitt verk bíður nýju ríkisstjórnarinnar því ekkert lát er á ólgunni í landinu. Í gærkvöld var sex íröskum hermönnum rænt í Beiji í norðurhluta landsins og þeir myrtir og í morgun fundust lík ellefu manna í Bagdad sem höfðu verið teknir af lífi.
Erlent Fréttir Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira