Talabani styður ekki al-Jaafari 4. mars 2006 18:00 Ibrahim al-Jaafari. MYND/AP
Stjórnarmyndunarviðræðurnar í Írak flæktust enn í dag þegar Jalal Talabani forseti lýsti því yfir að hann styddi ekki lengur Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra til áframhaldandi setu. Þótt tæpir þrír mánuðir séu liðnir síðan Írakar kusu sér nýtt löggjafarþing á grundvelli nýrrar stjórnarskrár. Hvorki hefur gengið né rekið við að mynda nýja ríkisstjórn enda virðist hver höndin vera upp á móti annarri á meðal stjórnmálamanna landsins. Í dag sté Jalal Talabani, forseti og Kúrdi, fram og sagðist ekki geta stutt sjíann Ibrahim al-Jaafari til áframhaldandi setu í forsætisráðherraembættinu þar sem hann stuðlaði fremur að sundrungu en samstöðu í landinu. Talabani bætist þar með í hóp þeirra súnnía og veraldlega þenkjandi sjía sem hafa horn í síðu Jaafari sem er einn af oddvitum heittrúaðra sjía. Jaafari hefur verið forsætisráðherra síðan í apríl 2005 en hann þykir ekki hafa staðið sig vel í embætti. Róstur eru ennþá miklar í landinu og tortryggni er enn mikil á milli þjóðarbrotana. Súnníar hafa sérstaklega gagnrýnt að sjíar virðast hafa sett herflokka sína undir verndarvæng innanríkisráðuneytisins, sem er undir stjórn sjía, og notað þá svo til að jafna sakirnar við súnnía frá fyrri tíð.
Erlent Fréttir Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira