Appelsínugula byltingin á enda? 26. mars 2006 18:45
Andstæðingar appelsínugulu byltingarinnar virðast hafa sigrað í þingkosningunum í Úkraínu í dag. Sextán mánuðum eftir sögulegan sigur Viktors Júsjenkó, finnst íbúum Úkraínu lítið hafa áunnist og umbætur gengið allt of hægt. Úkraínumenn hafa flykkst á kjörstaði í dag og víða hafa myndast langar biðraðir. Það er kannski ekki skrýtið, því að það tekur drjúgan tíma fyrir kjósendur að fara yfir kjörseðilinn, sem er nærri metri að lengd. Flestir muna eftir hatrammri kosningabaráttu Viktors Janúkóvitsj og forsetans Viktors Júsjenkó, sem var byrlað eitur og afskræmdist nánast í andliti. Þorri vestrænna ríkja studdi Júsjenkó með ráðum og dáð, en stjórnvöld í Rússlandi gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að koma Janúkóvitsj að kjötkötlunum. Júsjenkó stóð eitrið af sér, komst til valda og hefur að einhverju leyti fært landið nær vesturlöndum á þeim sextán mánuðum sem hann hefur verið forseti. En íbúarnir eru margir ósáttir. Vegna þessarar óánægju er nú útlit fyrir að landið gæti aftur færst nær stjórnvöldum í Kreml. Skoðanakannanir benda flestar til þess að flokkur Janúkóvitsj fái um þriðjung atkvæða í kosningunum í dag. Stjórnarmyndun gæti orðið erfið, því að hvorki Júsjenkó né Júlía Timosjenkó fyrrverandi forsætisráðherra vilja starfa með Janúkóvitsj og á milli þeirra tveggja andar enn köldu, eftir að Júsjenkó rak Timósjenkó úr starfi í september.
Erlent Fréttir Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira