Kynjaskipting að jafnast meðal skólastjórnenda í landinu 21. febrúar 2006 13:16
Fjöldi kvenna sem gegna starfi skólastjóra í grunnskólum landsins er nánast orðinn jafn mikill og fjöldi karla. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þá eru grunnskólanemendur landsins, með annað móðurmál en íslensku, rúmlega sextán prósentum fleiri nú í vetur en á síðasta skólaári. Hagstofan birti í dag á vefsíðu sinni ýmsar tölulegar upplýsingar varðandi grunnskóla landsins. Þar kemur meðal annars fram að skólarnir á yfirstandandi skólaári eru 177 talsins, eða einum færri en síðastliðinn vetur, og allir eru þeir einsetnir. Þetta er því fyrsta skólaárið sem hver einasti starfandi grunnskóli landsins er einsetinn. Í tölum Hagfstofunnar kemur einnig fram að kennarastéttin er að eldast. Síðastliðið haust var tæplega þriðjungur allra kennara eldri en fimmtugt en til samanburðar voru aðeins tæplega tuttugu og fjögur prósent kennara komnir voru yfir fimmtugsaldurinn árið 1998. Það kemur líklega fáum á óvart að konur eru í yfirgnæfandi meirihluta starfsmanna grunnskólanna, eða 81 prósent. Öllu athyglisverðara er að fjöldi kvenna sem gegna starfi skólastjóra í grunnskólum landsins er nánast orðinn jafn mikill og fjöldi karla. Af 180 starfandi skólastjórum eru konur 88 talsins, eða 49 prósent skólastjóra. Árið 1999 var þessi tala aðeins 34 prósent. Þá vekur óneitanlega athygli að fjöldi þeirra grunnskólanemenda, sem hefur annað móðurmál en íslensku, fjölgaði um rúmlega sextán prósent síðastliðið haust samanborið við síðasta skólaár. Af rúmlega 44 þúsund grunnskólanemum eru tæplega 1600 sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Flestir þessara nemenda hafa pólsku sem móðurmál en þar á eftir kemur enska og norðurlandamálin. Að lokum má geta þess að hlutfall kennara með kennsluréttindi er tæplega 87 prósent, og hefur ekki verið hærra síðan gagnasöfnun Hagstofunnar hófst árið 1997.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Erlent Fleiri fréttir Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Sjá meira