Páfagaukur talinn hafa sýkt hjón 9. mars 2006 22:00
Mögulegt er að sýking úr páfagauki hafi orðið til þess að hjón frá Akureyri veiktust alvarlega. Páfagaukaveiki er þekktur sjúkdómur sem hefur valdið fólki bana. Það var í lok janúar sem fjölskylda á Akureyri ákvað að festa kaup á páfagauki fyrir hartnær 300.000 krónur. Fuglinn gladdi eigendur sína en aðeins um skamma hríð. Eftir nokkrar vikur drapst fuglinn, og upp úr því fóru hjónin að kenna sér meina. 40 stiga hiti fylgdi veikindunum, þau þornuðu upp, ónæmiskerfið hrundi og lungnabólga kom upp. Héldu hjónin að inflúensu væri um að kenna. Loks var ástandið orðið svo alvarlegt að þau væru bæði lögð inn á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Þau fengu sýklalyf sem gerðu sitt gagn og eru útskrifuð í dag, en þó ekki orðin fullfrísk. Grunur kviknaði um að páfagauknum gæti verið um að kenna, en páfagaukaveiki er þekktur en mjög sjaldgæfur sjúkdómur sem getur smitast frá fuglum til manna. Hann smitast ekki manna á millum en einkenni sjúkdómsins eru að hluta þau sömu og fyrr er lýst. Páfagaukaveiki, psittacosis á latínu, sem einnig hefur verið kölluð fýlaveiki, er bakteríusýking sem getur valdið bana. Veikinnar varð vart á Íslandi á fjórða áratug 20. aldar en þá komust fýlar í tæri við sýkta páfagauka og fluttu með sér bakteríuna til Íslands með þeim afleiðingum að nokkrir veiktust en enginn dó. Frændur okkar Færeyingar sluppu ekki jafn vel. Þar dóu 32 úr páfagaukaveiki á þessum tíma. Tekið skal fram að páfagaukaveiki á ekkert skylt við fuglaflensu. En þekkt er að gæludýr geti smitað eigendur sína af ýmsum sjúkdómum svo sem salmonellu. Þar má nefna dýr eins og hunda, ketti, eðlur og froska en það þarf ekki fuglaflensu til að páfagaukar geti verið varasamir. Líkurnar á smiti eru þó ekki miklar og skal áréttað að þetta mál er ekki fullrannsakað.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira