Erlent

29 manns ákærðir vegna hryðjuverkanna í Madríd

Mennirnir sex sem sakaðir eru um beina þátttöku og skipulagningu í árásunum í Madríd.
Mennirnir sex sem sakaðir eru um beina þátttöku og skipulagningu í árásunum í Madríd. Mynd/AP

Tuttugu og níu voru í dag ákærðir vegna hryðjuverkanna í Madríd í mars árið 2004. Aðstandendur fórnarlamba árásanna gagnrýna ákærurnar og segja þær hroðvirknislega unnar.



Hryðjuverkin 11. mars 2004 eru þau verstu í sögu Spánar. Nærri tvö hundruð létust og tvö þúsund slösuðust. Sex Marokkómenn eru ákærðir fyrir hundrað níutíu og eitt morð og 1755 morðtilraunir. Hinir tuttugu og þrír eru ákærðir fyrir að vera vitorðsmenn. Ákærurnar eru viðamiklar og skjalið er rétt tæplega fimmtán hundruð síður. En magn og gæði haldast ekki alltaf í hendur og þeir sem voru í lestunum sem sprungu þennan morgun og komust lífs af eru ekki allir sannfærðir um að yfirvöld hafi vandað til verksins.

Þó að vissulega hafi mennirnir sex tekið beinan þátt í árásunum sé útilokað að þeir hafi skipulagt þær einir síns liðs. Réttarhöldin hefjast ekki fyrr en í byrjun næsta árs og gætu tekið meira en ár. Fastlega má gera ráð fyrir að einhverjir sakborninga fá nokkur þúsund ára fangelsisdóm, en samkvæmt spænskum lögum má samt ekki halda þeim í fangelsi nema að hámarki í fjörutíu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×