Erlent

Danskur hermaður lét lífið í Írak

Danskur hermaður lét lífið í Írak í gær eftir að vegsprengja sprengdi ökutæki sem hann var í. Annar hermaður særðist í sprengingunni. Þetta er þriðji danski hermaðurinn sem lætur lífið í stríðinu í Írak. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, sagðist í gær harma atburðinn en þetta myndi ekki hafa áhrif á veru Dana í Írak.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×