Erlent

Kona handtekin vegna morðsins á Hariri

Líbönsk kona sem grunuð er um aðild að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, var handtekin í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Brasilíska lögreglan greindi frá þessu í dag.

Rana Abdel Rahim Koleiat er rétt tæplega fertug að aldri. Hún hefur verið eftirlýst af alþjóðalögreglunni, Interpol, um nokkurt skeið. Hún var handtekin á hóteli í Sao Paulo eftir að brasilísku lögreglunni barst nafnlaus ábending um að hún væri þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×