Erlent

Ekki óskað eftir framsali Taylors

Stjórnvöld í Líberíu sögðu í dag ekkert til í þeim fréttum að þau hafi formlega farið þess á leit við yfirvöld í Nígeríu að Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, verði framseldur. Taylor er eftirlýstur af alþjóðadómstólum fyrir stríðsglæpi.

Upplýsingaráðherra líberísku ríkisstjórnarinnar sagði ekkert hæft í þessum fréttum og ekki hefði verið óskað eftir framsali Taylors.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×