Ekki útilokað að Milosevic hafi verið byrlað eitur 13. mars 2006 12:45 MYND/AP
Ekki er útilokað að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, hafi verið byrlað eitur en Milosevic lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Þrálátur orðrómur er á kreiki um að hann hafi stytt sér aldur, jafnvel að eitrað hafi verið fyrir honum. Milosevic fannst látinn á laugardagsmorgun í fangaklefa sínum í Haag. Lögmaður Milosevic, fullyrðir að forsetann fyrrverandi hafi grunað að reynt hafi verið að eitra fyrir sér. Það hefði komið fram í handskrifuðu bréfi til utanríkisráðherra Rússlands. Lögmaður Milosevic sýndi fréttamönnum bréfið í gær, orðum sínum til staðfestingar. Deilur hafa blossað upp milli ættingja Milosevic, um hvar eigi að jarða hann. Uppi eru hugmyndir um að jarða hann í Serbíu, Svartfjallalandi eða Rússlandi. Ekkja Milosevic, Mirjana Markovic, og sonur þeirra Marko flúðu til Rússlands eftir að Milosevic var handtekinn og hafa alþjóðlegar handtökuskipanir verið gefnar út á hendur þeim en þau eru eftirlýst fyrir valdníðslu í valdatíð Milosevic. Þau vilja að hann verði jarðaður í Moskvu en þau yrðu handtekin myndu þau mæta til útfara Milosevic yrði hún í Serbíu. Bróðir hins látna, vill hins vegar að hann verði grafinn í heimalandi sínu Serbíu. Þá vill dóttir Milosevic, Marija, að faðir hennar verði grafinn í Svartfjallalandi í grafreit fjölskyldunnar, um 50 km norður af höfuðborg Svartfjallalands, Podgorica. Milosevic var ákærður fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu í átökunum á Balkanskaga, meðal annars morð á 8.000 múslímum í Srebrenica í Bosníu
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira