Erlent

Íranar sitja fast við sinn keip

Enginn sáttatónn var í Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, í dag þegar hann ræddi um kjarnorkuáætlun klerkastjórnarinnar. Forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar situr nú á rökstólum í Teheran með írönskum ráðamönnum.

Íranar náðu mikilvægum áfanga í kjarnorkuáætlun sinni í vikubyrjun þegar þarlendum vísindamönnum tókst að auðga úran. Þar með færðust þeir skrefi nær því að geta framleitt rafmagn úr kjarnorku, en líka að framleiða kjarnavopn. Mohmamed ElBaradei, forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, er staddur í Íran þar sem hann freistar þess að fá klerkastjórnina ofan af áformum sínum. ElBaradei var bjartsýnn við komuna til Teheran.

Ekki er víst að Íranar séu sjálfir sömu skoðunar því í morgun lýsti hinn herskái forseti landsins, Mahmoud Ahmadinejad því yfir að ríkisstjórn sín væri ekki einu sinni til viðræðu um breytingar á kjarnorkuáætluninni. ElBaradei flytur öryggisráði Sameinuðu þjóðanna skýrslu um stöðu mála í Íran þann 28. apríl og á grundvelli hennar verður ákvörðun tekin um aðgerðir. Ríkisstjórnir landanna fimm sem þar hafa neitunarvald, þar á meðal Rússland og Kína, lýstu í gær vanþóknun sinni á framferði Írana. Ekki er þó víst að sátt náist um stefnu öryggisráðisins því Kínverjar leggjast gegn viðskiptaþvingunum og öðrum refsiaðgerðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×