Erlent

30 særðust í sprengingu í Istanbúl

Þrjátíu manns særðust, þar af tveir alvarlega, í sprengingu í úthverfi Istanbúl í Tyrklandi í gær. Lögregla telur að öflugri handsprengju hafi verið komið fyrir í ruslafötu og hún sprungið með þessum afleiðingum. Talsvert uppnám varð á vettvangi og réðst hópur fólks á saklausan mann sem það taldi hafa kveikt á sprengjunni. Varð lögregla að skjóta úr byssum sínum til að dreifa mannfjöldanum. Ekki er vitað hverjir bera ábyrgð á tilræðinu en talið er líklegast að kúrdískir aðskilnaðarsinnar eða róttækir vinstrimenn hafi verið þarna að verki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×