Tíu handteknir 25. apríl 2006 18:00
Tíu hafa verið handteknir vegna hryðjuverkanna í Egyptalandi í gær. Tuttugu og fjórir féllu og sextíu særðust þegar vinsæll ferðamannastaður breyttist um stund í vígvöll. Íslensk hjón, sem eru í Sharm el Sheik, segja heimamenn algjörlega miður sín. Strandbærinn Dahab í Egyptalandi er ekki svipur hjá sjón eftir árásirnar í gær. Staðurinn, þar sem alla jafna eru glaðir ferðamenn að njóta hins ljúfa lífs, einkenndist í dag af ærandi þögn, eyðileggingu, depurð og blóðslettum. Flest bendir nú til að ekki hafi verið um sjálfsmorðsárásir að ræða, heldur hafi þrjár tímastilltar sprengjur sprungið á fjölförnum stað á mesta annatíma með örstuttu millibiliTíundi hver Egypti vinnur við ferðamannaiðnað og alls færa ferðamenn um fimm hundruð milljarða íslenskra króna inn í hagkerfi landsins á hverju ári. Ætlunin var að ná níu milljón ferðamönnum til Egyptalands í ár, en árásirnar á Sharm el Sheik í fyrra og síðan Dahab í gær hafa heldur betur sett strik í reikninginn.Tíu voru handteknir vegna árásanna í dag, allt Egyptar. Ekki er vitað hvaða hlutverki þeir gegndu við skipulagningu árásanna, né hvort þeir tengjast stórum hryðjuverkasamtökum. Bragi Jónsson og Erla Hendriksdóttir eru í Sharm el Sheikh, næsta bæ við Dahab, þar sem nærri sjötíu féllu í hryðjuverkaárás í fyrra. Bragi segir að þeim sé nú ráðlagt að halda sig innan dyra, auk þess sem ferðin verður stytt í annan endann og farið aftur heim um helgina. Bragi segir stafsmenn við ferðamannaiðnaðinn í Sharm el Sheikh harmi slegna. Þetta sé þungt högg fyrir ferðamannaiðnaðinn sem eigi eftir að hafa miklar afleiðingar.
Erlent Fréttir Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira