Íranir láta andstöðu alþjóðasamfélagsins ekki á sig fá 25. apríl 2006 17:13 Ali Larijani. Mynd/AP
Allt bendir til þess að Íranar ætli að halda áfram auðgun úrans þrátt fyrir kröfur alþjóðasamfélagsins um að því verði hætt. Stjórnvöld í Teheran segjast ætla að hætta allri samvinnu við Alþjóða kjarnorkumálastofnunina verði gripið til refsiaðgerða og hafa boðið nágrannaríkjum sínum aðgang að kjarnorkutækni sinni. Sá frestur sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur veitt Írönu til að hætta auðgun úrans rennur út á föstudaginn en þá kynna fulltrúar Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar ráðinu nýja skýrslu um stöðuna í kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran.Ali Larijani, aðal samningamaður Írana í kjarnorkumálum, sagði í dag að stjórnvöld í Teheran hætti þegar allri samvinnu við Aljóða kjarnorkumálastofnunina grípi Öryggisráðið til refsiaðgerða líkt og Bandaríkjamenn og Bretar vilja. Hann sagði hernaðaraðgerðir ekki draga kjarkinn úr Írönum sem ætluðu að nýta sér kjarnorku. Ummæli Larijanis koma degi eftir að Ahmadinejad, Íransforseti, spáði því áð Öryggisráið myndi ekki grípa til refsiaðgerða og varaði við því að til greina kæmi að draga sig úr samstarfi á vettvangi samningsins um bann við drefingu kjarnorkuvopna.Ali Khamenei, æðsti klerkur í Íran, segir stjórnvöld í Teheran tilbúin að veita nágrannaríkjum aðgang að kjarnorkutækni sinni. Ætla má að þessi ummæli vekji hörð viðbrögð frá vestrænum ríkjum.Ali Khamenei fundaði í dag með Omar al-Bashir, Súdansforseta. Súdanar hafa áður lýst því yfir að þeir hefðu áhuga á að nýta kjarnorku til raforkuframleiðslu þar sem óvíst er hvort orkuþörf í framtíðinni verði svarað með núverandi framleiðslu. Írönur er ekki bannað að veita upplýsingar um kjarnorkuáætlun sína svo fremi að þeir og þau ríki sem fengju aðgang að upplýsingunum séu aðilar að alþjóðasamningnum um bann við dreifingu kjarnorkuvopna. Auk þess verður Alþjóða kjarnorkumálastofnunin að hafa eftirlit með upplýsingagjöfinni.
Erlent Fréttir Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Tugir látnir eftir þeir reyndu að sækja sér mat Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Sjá meira