Lík hlaðast upp í Líbanon 3. ágúst 2006 20:15
Ísraelar segjast hafa náð um tuttugu þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald og þar með tryggt öryggissvæði sem þeir vilja stækka enn frekar á næstu dögum. Forsætisráðherra Líbanons segir níu hundruð manns hafa fallið í átökum liðinna vikna og einn fjórða landsmanna hafa lent á vergangi. Að sögn hermálayfirvalda nær öryggissvæði Ísraela í Líbanon rúma sex kílómetra frá landamærunum og vonast Ísraelar til að geta tvöfaldað þá vegalengd á næstu dögum. Talið er að um það bil tíu þúsund hermenn berjist nú við Hizbollah-skæruliða í Suður-Líbanon. Loftárásir Ísraelsmann hafa haldið áfram. Árásir á Beirút, höfuðborg Líbanons, hafa hafist að nýju eftir nokkurra daga hlé. Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, segir níu hundruð Líbana hafa fallið í árásum síðustu þriggja vikna og þrjú þúsund særst. Einn þriðji þeirra sé undir tólf ára aldri. Siniora segir eina milljón Líbana á vergangi vegna átakanna, eða einn fjórða landsmanna. Heimildarmaður í öryggissveitum Líbanons segir áttatíu skæruliða Hizbollah hafa fallið í átökunum en Ísraelar segjast hafa fellt á bilinu þrjú til fjögur hundruð skæruliða. Hizbollah liðar hafa haldið flugskeytaárásum sínum á Ísrael áfram í dag og hafa átta Ísraelar fallið í þeim það sem af er degi. Alls hafa sextíu og sjö Ísraelar týnt lífi í átökunum, þar af fjörutíu hermenn. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segist vongóður um að hægt verði að ná saman um ályktun í málinu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á næstu dögum. Sendifulltrúi Frakka hjá samtökunum er ekki eins vongóður. Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagði í dag að lausn mála í Mið-Austurlöndum væri eyðing Ísraelsríkis en fyrst um sinn væri aðeins hægt að binda enda á átökin með vopnahlé. Um leið og föllnum fjölgar dag frá degi vinna líkkistusmiðir í Líbanon myrkranna á milli. Líkhúsin í Líbanon eru yfirfull og því hefur þurft að geyma lík í flutningabílum sem búnir eru kælibúnaði.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Sjá meira