Innlent

Tuttugu hópnauðganir á árinu

Landspítali – Háskólasjúkrahús
Landspítali – Háskólasjúkrahús MYND/GVA

Hópnauðgunum á Íslandi hefur fjölgað úr átján í tutt-ugu milli ára, þegar enn er rúmur mánuður til ársloka. Einnig hafa fleiri nauðgunarmál komið inn á borð neyðarmóttöku Landspítalans en í fyrra. Í lok þessa mánaðar höfðu 134 mál borist, en þau voru 130 alls í fyrra. Af þessum 134 málum hafa einungis 43 mál verið kærð til lögreglu, eða 32 prósent.

Eyrún B. Jónsdóttir, deildarstjóri á neyðarmóttökunni, segir að hlutfall kærðra hópnauðgana sé enn minna, því að einstaklingur sem lendir í því að vera nauðgað af tveimur gerendum eða fleiri upplifi sig svo niðurlægðan að sjaldan sé farið með málið lengra. Að auki komi oft fyrir að líði yfir fórnarlambið í hópnauðgunum og því geti verið erfitt að segja til um hverjir komu að máli.

Til hópnauðgana teljast þau mál þar sem fleiri en einn gerandi fremur glæpinn. Einnig ber fólki skylda til að koma fórnarlambi kynferðisglæps til hjálpar og telst það því hópnauðgun þegar horft er upp á nauðgun, án beinnar þátttöku. Hið sama á að sjálfsögðu við þegar annar gerandinn heldur fórnarlambi föstu meðan hinn kemur fram vilja sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×