Erlent

Hálfri milljón fugla slátrað

Fuglaslátrarar í Suður-Kóreu.
Fuglaslátrarar í Suður-Kóreu. MYND/AP

Hálfri milljón alifugla verður slátrað í Suður-Kóreu á næstu dögum til að hefta útbreiðslu H5N1 fuglaflensu sem greindist þar á þriðjudag. Þegar hefur yfir 150 þúsund fuglum verið slátrað en engir menn hafa greinst með fuglaflensu í þessu tilfelli.

Fuglaflensan af þessum stofni hefur ekki fundist í Suður-Kóreu í rúm þrjú ár en fannst á þriðjudag á tveimur fuglabúum um 170 kílómetra suður af Seúl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×