Erlent

Geislavirkni í flugvélum British Airways

Mikil lögreglurannsókn hefur tengst morðinu á Litvinenko. Eitrað var fyrir honum með geislavirku póloni.
Mikil lögreglurannsókn hefur tengst morðinu á Litvinenko. Eitrað var fyrir honum með geislavirku póloni. MYND/AP

Leifar af geislavirka efninu, sem að varð Alexander Litvinenko, fyrrum rússneskum njósnara, að bana, fundust um borð í tveimur áætlunarflugvélum British Airways í gær og voru vélarnar þegar teknar úr umferð. Vélarnar hafa aðallega verið í ferðum á milli Moskvu og London og styrkir þetta grunsemdir um að Rússar, sem sögðust vera uppljóstrar, hafi eitrað fyrir Litvinenko.

Sérfræðingar segja að geislunarhætta í vélunum hafi þó verið mjög lítil en engu að síður yrði haft samband við alla, sem flogið hafa með vélunum að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×