Erlent

Fer ekki frá Írak fyrr en „verkinu er lokið“

Bush fundaði með Abdullah Jórdaníukonungi í gær.
Bush fundaði með Abdullah Jórdaníukonungi í gær. MYND/AP

George Bush, Bandaríkjaforseti, sagði í morgun að Bandaríkjamenn muni ekki draga herlið sitt frá Írak fyrr en „verkinu er lokið.“ Hann sagði að herinn myndi ekki fara frá Írak meðan stjórnvöld þar óskuðu eftir nærveru hersins.

Bush sagði Maliki hafa sagt við sig að Írak leysast upp í ofbeldi ef landinu yrði á einhvern hátt skipt upp milli trúarhópa.

Bush lofaði Nuri al-Maliki sem sterkan leiðtoga og sagði Bandaríkjamenn myndu í auknum mæli hjálpa við þjálfun öryggissveita Íraks. Hann sagði morgunverðarfund þeirra aðallega hafa snúist um þjálfun öryggissveita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×