Erlent

Fleiri krefjast afsagnar Rumsfelds

MYND/AP

Tveir uppgjafarhershöfðingjar hafa bæst í hóp þeirra sem krefjast afsagnar Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Alls hafa því sex hershöfðingjar, sem nú hafa látið af störfum, hvatt ráðherrann til að segja af sér. Þeir segja að hann beri ábyrgð á röð mistaka sem hafi verið gerð við innrásina í Írak og hersetuna í framhaldi af henni. Anthony Zinni hershöfðingi úr landgönguliði Bandaríkjahers segir að Rumsfeld hafi klúðrað herför sem hafi tekið tíu ár að undirbúa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×