Fyrsta nethappdrættinu á Íslandi hleypt af stokkunum 27. febrúar 2006 22:18 MYND/E.Ól.
Fyrsta rafræna happdrættinu hér á landi var hleypt af stokkunum í dag hjá Kiwanisklúbbnum Setbergi. Forsvarsmaður klúbbsins segir þetta tímamót í fjáröflun á Íslandi. Á undanförnum mánuðum hefur kiwanisklúbburinn Setberg í Garðabæ unnið að því að hefja fjáröflun með rafrænum hætti í samvinnu við hugbúnaðarfyrirtækið Cofus ehf. Afraksturinn, nethappdrætti sem kallast „Milljónatombólan", var kynnt í dag og var það Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra sem keypti fyrsta miðann. Bæði er hægt að kaupa miða á Netinu og í verslunum, auk þess sem fyrirtæki geta keypt inneignir sem auglýsingavöru. Í boði eru glæsilegir vinningar og er hæsti vinningur ein milljón króna en vinningar verða greiddir út í rafrænum gjafabréfum hjá verslunum. Kiwanismenn binda miklar vonir við happdrættið að sögn Matthíasar Guðmundar Péturssonar, formanns fjáröflunarnefndar Setbergs. Hann segir klúbbinn hafa 30 ára reynslu af fjáröflun og að aðferðirnar sem notast hafi verið við hingað til séu orðnar þreyttar. Og Matthías segir að talsvert hafi þurft að hafa fyrir því að fá leyfi fyrir happdrættinu hjá dómsmálaráðuneytinu. Ágóði af happdrættinu mun renna til ýmissa góðgerðafélaga og mun allur ágóði af fyrstu umferð Milljónatombólunnar renna til styrktar félagasamtökum um taugasjúkdóma, t.a.m. MND-félagsins og MS-félagsins. Milljónatombóluna er að finna á slóðinni www.cofus.is/kiwanis-setberg og er hún aðgengileg fyrir átján ára og eldri.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira