Fólk enn hrætt í Bagdad þrátt fyrir kyrrð í morgun 27. febrúar 2006 12:15 Írakskur lögreglumaður gætir kvenna sem kaupa eldsneyti á markaði í Bagdad í morgun. MYND/AP
Þriggja daga samfelldu útgöngubanni var aflétt í Bagdad í morgun. Hræðsla er þó enn ofarlega í huga fólks og margir óttast að kyrrðin í morgun sé bara lognið á undan storminum. Hingað til hafa það einkum verið tveir hópar uppreisnarmanna sem hafa staðið að árásum í Írak. Annars vegar þjóðernissinnaðir Súnníar sem finnst þeir engu fá ráðið um framtíð Íraks eftir að Saddam Hússein var steypt af stóli. Svo eru það hryðjuverkamenn úr röðum al-Kæda, sem einkum koma frá Sýrlandi. Eftir vel heppnaðar kosningar í desember bundu menn vonir við að þjóðernissinnarnir myndu láta af árásum í bili og því gætu öryggissveitir einbeitt sér að erlendum hryðjuverkamönnum. Eftir árásina á al-Askari moskuna, einn heilagasta stað Sjía, í síðustu viku, virðast þessar vonir foknar út í veður og vind. Meira en tvö hundruð manns hafa týnt lífi í Írak undanfarna fimm daga í hrinu árása. Síðast í gær létust sextán og nærri fimmtíu slösuðust í sprengjuvörpuárás á íbúðarhverfi Sjía í suðvesturhluta Baghdad. Eftir árásina á al-Askari hefur andrúmsloftið í Írak verið rafmagnað og borgarastyrjöld virst í aðsigi. Höfuðborgin iðaði ekki beinlínis af lífi í morgun, en engu að síður virtust flestir tilbúnir til að hefja dagleg störf á ný, eftir sannkallað upplausnarástand síðustu fimm dagana. Útgöngubannið virðist hafa haft tilætluð áhrif og gefið lögreglu- og hermönnum svigrúm til að lægja öldurnar í höfuðborginni. Af fenginni reynslu óttast þó margir að kyrrðin sé ekki komin til að vera. Átökum Sjía og Súnnía sé hvergi nærri lokið og rólegheitin í morgun séu aðeins lognið á undan storminum.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira