Margvíslegur niðurskurður 23. mars 2006 18:45
Lokun herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli er liður í umfangsmikilli endurskoðun bandarískra stjórnvalda á herstöðvaneti sínu í heiminum. Allur gangur er á hvernig þau hafa staðið að niðurskurði í rekstri stöðva sinna erlendis. Það er af sem áður var þegar bandaríski flugherinn starfrækti herstöðvar í tugatali um allan heim sem hundruð þúsunda hermanna og borgara unnu við. Undanfarin ár hefur gagnger endurskoðun farið fram á þessu þéttriðna neti og þær stöðvar sem á tímum kalda stríðsins gegndu mikilvægu hlutverki hafa týnt tölunni. Ein þessara stöðva var Rhein Mein herflugvöllurinn í Frankfurt í Þýskalandi en á sínum tíma var hann sá stærsti sem Bandaríkjamenn ráku í Evrópu. Í desember á síðasta ári var honum lokað og sú starfsemi sem var eftir flutt til Ramstein-vallarins sem er nærri Stuttgart. Ólíkt Keflavíkurstöðinni var tilkynnt um lokunina með mjög góðum fyrirvara, eða strax árið 1990. Dregið var úr starfseminni smátt og smátt, til dæmis með að ráða ekki í þau störf sem losnuðu, og því fengu íbúar á svæðinu, sem í fyrstu voru óttaslegnir um sinn hag, umtalsvert svigrúm til að laga sig að þessum nýja veruleika. Á Azoreyjum, sem eru í miðju Atlantshafinu og tilheyra Portúgal, rekur bandaríski flugherinn, í samvinnu við portúgalska herinn, Ladsjes-flugvöllinn. Legu sinnar vegna gegndu eyjarnar, líkt og Ísland, þýðingarmiklu hlutverki í kalda stríðinu en snemma á tíunda áratugnum var mjög dregið úr starfseminni í herstöðinni. Hundruðum borgarlegra starfsmanna var sagt upp og ollu þessar ráðstafanir vitaskuld algeru uppnámi á eyjunum, því eins og hér á landi hafa eyjaskeggjar verið Bandaríkjamönnum háðir um störf. Til að draga úr ólgunni fengu þeir sem misstu vinnuna skaðabætur en að auki fékk portúgalska ríkisstjórnin að kaupa F-16 þoturnar sem staðsettar voru í Ladsjes-stöðinni á góðum kjörum. Varla er hægt að minnast á umsvif Bandaríkjamanna erlendis án þess að minnast á Thúle-stöðina á vestanverðu Grænlandi. Saga hennar hefur verið þyrnum stráð, til dæmis vegna nauðungarflutninga á inúítum sem bjuggu á svæðinu snemma á sjötta áratugnum og vegna mikillar mengunar af völdum eiturefna og þungmálma sem gerir umhverfið nánast óbyggilegt. Í dag þykir stöðin gegna mikilvægu hlutverki í eldflaugavarnakerfi Bandaríkjamanna en þeir sömdu við Dani haustið 2004 um uppfærslu ratsjárkerfa í Thúle, við lítinn fögnuð Grænlendinga.
Erlent Fréttir Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira