Erlent

Segir Íransforseta minna á Hitler

Forseti Írans er siðblindingi sem minnir á Adolf Hitler. Þetta segir Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, sem biður til guðs að Íranar komi sér ekki upp kjarnorkuvopnum. Í blaðaviðtali í gær sagði Olmet að ummæli Mahmouds Ahmedinajad um útrýmingu Gyðinga minntu á Adolf Hitler áður en hann komst til valda. Alþjóðasamfélagið ætti í viðræðum við siðblindan mann, sem beita ætti öllum ráðum til að kæmist ekki yfir kjarnavopn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×