Erlent

Rumsfeld kærður í dag

Donald Rumsfeld, t.v. og arftaki hans í forgrunni, Robert Gates.
Donald Rumsfeld, t.v. og arftaki hans í forgrunni, Robert Gates. MYND/AP

Þýsk mannréttindasamtök munu í dag höfða mál í Þýskalandi með beiðni um að þýskir lögfræðingar geti rannsakað þátt Donalds Rumsfelds, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í stríðsglæpum í Írak og á Kúbu.

Kæran snýr að meintum pyntingum í tvennum alræmdum fangabúðum Bandaríkjamanna: Abu Ghraib í Írak og Guantanamo á Kúbu. Rumsfeld er sakaður um að hafa sjálfur fyrirskipað pyntingar. Þýskt réttarfar heimilar að menn séu sóttir til saka fyrir stríðsglæpi, óháð því hvar glæpirnir voru framdir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×