Erlent

Myndun ríkisstjórnar hefst á næstu dögum

Romano Prodi, leiðtogi Ólívubandalags mið- og vinstri flokka á Ítalíu, segir viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar hefjast á næstu dögum. Silvio Berlusconi forsætisráðherra krefst þess að atkvæði í þingkosningunum verði talin á ný.

Fimm kassar troðnir kjörseðlum fundust í ruslatunnu í Róm í dag. Kassarnir voru allir merktir innanríkisráðuneyti landsins. Í þeim var einnig að finna önnur kjörgögn og eitthvað af gildum atkvæðum. Ítalar gengu að kjörborðinu á sunnudag og mánudag og vann bandalag mið- og vinstriflokka, undir forystu Romanos Prodis, nauman meirihluta í efri og neðri deild þingsins. Berlusconi forsætisráðherra og leiðtogi bandalags hægriflokka hefur ekki viðurkennt ósigur og krefst þess að atkvæði verði talin að nýju.

Prodi átti í dag fund með Carlo Azeglio Ciampi, forseta Ítalíu. Forsetinn hefur sagt að hann ætli að eftirláta arftaka sínum að veita stjórnarmyndunarumboð en kjörtímabili hans lýkur í næsta mánuði. Velja þarf nýjan forseta fyrir þrettánda maí og sagði Prodi í dag að þing myndi á næstu dögum byrja að semja um hver verði arftaki Ciampis.

Prodi sagði einnig að viðræður um skipan nýrrar ríkistjórnar myndu hefjast á næstu dögum. Hann segist hafa nauðsynlegan meirihluta á þingi til þess, þrátt fyrir að Berlusconi viðurkenni ekki ósigur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×