Erlent

Prodi hafnar tillögu Berlusconis

MYND/AP

Romano Prodi, leiðtogi mið- og vinstrimanna á Ítalíu, hafnaði í gær tillögu Silvios Berlusconis, forsætisráðherra og leiðtoga fylkingar hægrimanna, um myndun samsteypustjórnar. Berlusconi hefur neitað að játa sig sigraðan fyrr en atkvæði hafa verið endurtalin en vinstri fylking Prodis hlaut meirihluta í báðum deildum þingsins. Munurinn gæti þó ekki hafa verið minni í efri deildinni, en þar munar einungis tveimur þingsætum, 158 á móti 156. Verði talið aftur kann það að dragast nokkuð að formleg úrslit verða staðfest. Sérfræðingar segja að þótt Prodi myndi nýja ríkisstjórn hafi hann það nauman meirihluta að erfitt geti reynst að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum umbótum í efnahagslífi landsins en hagvöxtur á Ítalíu var enginn í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×