Erlent

Íranar farnir að auðga úran

MYND/AP

Íranar eru farnir að auðga úran til framleiðslu á kjarnorkueldsneyti fyrir raforkuver landsins. Forseti landsins staðfesti þetta í sjónvarpsávarpi í gær. Donald Rumsfeld, varnarmálráðherra Bandaríkjanna, sagði Írana vera á rangri leið og leitað yrði allra leiða til að stöðva þá í áætlunum sínum. Hingað til hafa Bandaríkjamenn ekki útilokað árásir á landið en talið er þó ólíklegt að það verði af því. Í síðasta mánuði gaf öryggisráðið Írönum mánaðarfrest til að hætta öllum kjarnorkurannsóknum sínum en hvort refsiaðgerðum verði beitt gegn landinu, hefur enn ekki verið ákveðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×