Íranar halda sínu striki 28. apríl 2006 18:45
Deilan um kjarnorkuáætlun Írana harðnaði enn í dag þegar í ljós kom að þeir hafa hundsað áskoranir alþjóðasamfélagsins um að láta af auðgun úrans. Stjórnvöld í Teheran eru sögð hafa fest kaup á meðaldrægum norðurkóreskum eldflaugum sem geta náð til Evrópulanda. Mohammed ElBaradei, forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, kynnti í dag öryggisráði Sameinuðu þjóðanna skýrslu sína um hvernig Íranar hefðu brugðist við fyrri áskorunum þess um að láta af auðgun úrans. Skemmst er frá því að segja að niðurstaða hennar er skýr og hljóðið í sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum þungt eftir því. Vinnslan er semsagt komin vel á veg og eru Íranar sagðir einarðari en nokkru sinni fyrr í að ná fram markmiðum sínum, rétt eins og þeir hafa raunar alltaf verið ófeimnir við að viðurkenna. Rússar og sérstaklega Kínverjar, sem eiga viðskiptahagsmuna að gæta í Íran, leggjast gegn efnahagsþvingunum og því er ekki gert ráð fyrir að öryggisráðið grípi til annarra aðgerða í bili en að binda fyrri áskorun sína í ályktun sem fær þar með lagalegt gildi. Íransdeilan var rædd á utanríkisráðherrafundi NATO í Búlgaríu en því hefur verið fleygt að "staðfastar þjóðir," eins og það er stundum orðað, taki höndum saman um refsiaðgerðir án milligöngu Sameinuðu þjóðanna. Að svo stöddu er það þó heldur ólíklegt. Íranar láta sér hins vegar ekki nægja að auðga úran því ísraelska dagblaðið Haaretz greindi frá því í morgun að þeir hefðu keypt meðaldrægar eldflaugar af Norður-Kóreumönnum. Þær geta borið kjarnaodda og dregið 2.500 kílómetra, eða allt til ríkja í Suðaustur- og Austur-Evrópu.
Erlent Fréttir Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Fleiri fréttir „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Sjá meira