Erlent

Íranar halda sínu striki

Deilan um kjarnorkuáætlun Írana harðnaði enn í dag þegar í ljós kom að þeir hafa hundsað áskoranir alþjóðasamfélagsins um að láta af auðgun úrans. Stjórnvöld í Teheran eru sögð hafa fest kaup á meðaldrægum norðurkóreskum eldflaugum sem geta náð til Evrópulanda.

Mohammed ElBaradei, forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, kynnti í dag öryggisráði Sameinuðu þjóðanna skýrslu sína um hvernig Íranar hefðu brugðist við fyrri áskorunum þess um að láta af auðgun úrans. Skemmst er frá því að segja að niðurstaða hennar er skýr og hljóðið í sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum þungt eftir því.

Vinnslan er semsagt komin vel á veg og eru Íranar sagðir einarðari en nokkru sinni fyrr í að ná fram markmiðum sínum, rétt eins og þeir hafa raunar alltaf verið ófeimnir við að viðurkenna. Rússar og sérstaklega Kínverjar, sem eiga viðskiptahagsmuna að gæta í Íran, leggjast gegn efnahagsþvingunum og því er ekki gert ráð fyrir að öryggisráðið grípi til annarra aðgerða í bili en að binda fyrri áskorun sína í ályktun sem fær þar með lagalegt gildi. Íransdeilan var rædd á utanríkisráðherrafundi NATO í Búlgaríu en því hefur verið fleygt að "staðfastar þjóðir," eins og það er stundum orðað, taki höndum saman um refsiaðgerðir án milligöngu Sameinuðu þjóðanna. Að svo stöddu er það þó heldur ólíklegt.

Íranar láta sér hins vegar ekki nægja að auðga úran því ísraelska dagblaðið Haaretz greindi frá því í morgun að þeir hefðu keypt meðaldrægar eldflaugar af Norður-Kóreumönnum. Þær geta borið kjarnaodda og dregið 2.500 kílómetra, eða allt til ríkja í Suðaustur- og Austur-Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×