Óttast ókyrrð í íslensku fjármálalífi 2. apríl 2006 10:00
Breskir fjárfestar óttast að ókyrrð í íslensku fjármálalífi leiði til þess að íslenskir fjárfestar selji eigur sínar í Bretlandi. Hlutabréf í félögum þar sem íslendingar hafa fjárfest hafa lækkað í verði vegna þessa ótta á umliðnum dögum. Frá þessu er ítarlega greint í blaðinu Sunday Times í dag.Blaðagreinin endurspeglar þá staðreynd að íslenskt fjármálalíf getur haft víðtæk áhrif í bresku atvinnulífi, svo mikil ítök hafa íslenskir fjárfestar orðið í Bretlandi. Í Sunday Times er bent á að 65 þúsund breskir starfsmenn séu vinnandi hjá þeim fyrirætkjum sem Íslendingar hafi verið að fjárfesta í. Hollustan í íslensku hagkerfi geti því haft veruleg áhrif í Bretlandi ef undan fjarar.Blaðamaður Sunday Times rifjar upp gagnrýnisraddir um yfirhitun á Íslandi og grandvaraleysi í bankakerfinu sem gagnrýnt hefur veirð í matsskýrslum. Bankarnir hafi farið geyst og standi illa að vígi nú þegar íslensku bankarnir eigi ekki eins greiðan aðgang að ódýru lánsfé til að endurfjármagna skammtímaskuldir sínar. Sigurður Einarsson, forstjóri KB banka blæs á þessa gagnrýni í Times og telur að hún sé yfirkeyrð. Ljóst er þó að breskir fjárfestar hafa áhyggjur af því að kreppuskot á Íslandi kunni að leiða til þess að íslenskir fjárfestar þurfi að selja eigur sínar í stjórum stíl. Þetta endurspeglast í lækkun á gengi hlutabréfa í íslensku fyrirtækjunum á Bretlandsmarkaði á umliðnum dögum.Sunday Times bendir á að hlutir í Wollworths og French Connection hafi lækkað í verði en Baugur hefur náð 10 og 13 prósenta hlutdeild í þessum versluanrkeðjum. Að baki liggur ótti við að Íslendingar selji og að sú sala hafi keðjuverkandi áhrif. Eins er bent á að FL Group eigi nú 16,5 prósenta hlut í flugfélaginu Easy Jet sem hafi stórlækkað í verði á mörkuðum vegna sama ótta. Nemur lækkun á markaðsvirði félagsins hundruð milljóna króna á síðustu dögum.Nálgast má grein Sunday Times hér
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Sjá meira