Fátækt barna á Vesturlöndum eykst 1. mars 2005 00:01
Fátækt meðal barna fer vaxandi í ríkari löndum heimsins. Velmegun barna er mest á Norðurlöndunum en í Bandaríkjunum lifir ríflega fimmtungur þeirra undir skilgreindum fátæktarmörkum. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna UNICEF birti í gær skýrslu um hagi barna í 24 aðildarlöndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. Þar kemur fram að í sautján þessara landa hefur hlutfall barna sem búa undir fátæktarmörkum vaxið síðasta áratuginn. UNICEF telur barn vera fátækt ef þær tekjur sem notaðar eru til að framfleyta því eru meira en helmingi lægri en þær meðaltekjur sem börn í því þjóðfélagi búa við. Því gefa upplýsingarnar ágæta mynd af jöfnuði í þessum ríkjum. Norðurlöndin raða sér í efstu sæti listans yfir þau lönd þar sem börn búa við bestan hag en Bandaríkin og Mexíkó verma botnsætin. Þótt Norðmenn séu ekki í efsta sæti er staða þeirra talin sérstaklega eftirtektarverð því Noregur er eina landið þar sem fátækt á meðal barna þykir mjög lítil og fer auk þess minnkandi. UNICEF bendir á að stærð þjóðanna hafi hér nokkuð að segja, því fjölmennari sem þær eru þeim mun hærra hlutfall barna býr undir fátæktarmörkum. Stofnunin bendir ennfremur á að minna en tíundi hluti barna lifir undir fátæktarmörkum í þeim aðildarríkjum OECD sem verja meira en tíu prósentum þjóðarframleiðslu sinnar til velferðarmála. Miklu máli skiptir hins vegar hvernig þessum fjármunum er varið því fátækt er mismikil í löndum sem verja svipuðum upphæðum til þessara mála. Af því dregur UNICEF þá ályktun að hægt sé að draga úr fátækt barna í mörgum löndum án þess að auka þurfi ríkisútgjöld svo nokkru nemi. Vegna smæðarinnar er Ísland er ekki á meðal þeirra ríkja sem UNICEF skoðar í skýrslu sinni en talsmenn stofnunarinnar segja að fátækt barna sé ekki vandamál hérlendis heldur séum við á svipuðum slóðum og frændþjóðir okkar á Norðurlöndunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira