Bretar verja aðgerðir í Basra 20. september 2005 00:01
Það var "algjörlega rétt" af breska herliðinu í Írak að brjótast með brynvagni inn í fangelsi í Basra til að frelsa tvo breska hermenn, að því er talsmenn breskra stjórnvalda lýstu yfir í gær. Atvikið átti sér stað í fyrradag og olli mikilli reiði meðal Basrabúa. Írösk yfirvöld sögðu það "afar óheppilegt". Írakar í Basra sögðu á mánudag að tveir breskir hermenn hefðu verið handteknir eftir að hafa skotið á íraska lögreglumenn. Annar þeirra hefði látið lífið af sárum sínum. Talsmaður Íraksstjórnar sagði hins vegar í gær að hermennirnir, sem hefðu verið borgaralega klæddir, hefðu verið handteknir fyrir að hafa "sýnt mjög grunsamlega hegðun". Engin staðfesting fékkst á því hvaða fullyrðing væri rétt í málinu. Talsmenn breskra yfirvalda standa hins vegar fastir á því að hermennirnir hefðu verið ólöglega handteknir og síðan seldir í hendur vopnaðra sveita sjía-múslima. Af ótta við að hermennirnir yrðu drepnir var gripið til aðferða sem taldar voru til þess fallnar að bjarga mönnunum úr haldi með sem snörustum hætti. Mohammed al-Waili, fylkisstjóri Basra-héraðs, staðfesti í gær að Bretarnir tveir hefðu verið í haldi vopnaðra sjía, sem vitað er að gefi sig oft út fyrir að vera lögreglumenn. Hann fordæmdi hins vegar innrás Breta í lögreglustöðina. Hana sagði al-Waili "villimannslega". Spenna hefur farið vaxandi að undanförnu í Basra, næst-stærstu borg Íraks með um eina og hálfa milljón íbúa, þótt þar hafi verið mun friðsamlegra en á uppreisnarsvæðunum í Mið-Írak og víðar í landinu. Mannfall í röðum Breta og hermanna annarra þjóða í setuliðinu í Suður-Írak hefur verið hverfandi í samanburði við þann toll sem hernámið hefur kostað Bandaríkjaher. Hann tilkynnti í gær að tala fallinna bandarískra hermanna væri nú komin í 1.904 frá því innrásin hófst fyrir tveimur og hálfu ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira