Langt í löggæslu í Reykhólasveit 9. ágúst 2005 00:01 MYND/Róbert Reynisson
Sveitarstjóri Reykhólasveitar er ósáttur með löggæslu í sinni sveit og segir engan þéttbýliskjarna á landinu eiga jafn langt að sækja til sinnar lögreglustöðvar. Lögreglustöðin sem er á Patreksfirði er í um 200 kílómetra fjarlægð og er leiðin þangað oft erfið yfirferðar. Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri Reykhólahrepps, er uggandi yfir löggæslumálum á Reykhólum þar sem um 100 búa í þorpinu og hátt í 300 í sveitinni allri. Hann segir fjóra lögregluþjóna á Patreksfírði eiga að þjóna bæði vestur og austur Barðastrandarsýslu og hann segir gallann vera þann að fjarlægðin til Patreksfjarðar sé 200 kílómetrar. - Næsta lögreglustöð er í Hólmavík en þangað eru rúmir 60 kílómetrar og vegurinn á milli er aðeins sumarvegur. Eins eru 75 kílómetrar í Búðardal en þar eru löggæslumálin heldur ekki með sterkast móti. Sýslumaðurinn í Dalabyggð hefur aðeins einn lögregluþjón í sinni þjónustu sem er einsdæmi. Skelfilegt banaslys varð í Reykhólasveit um síðustu helgi og þrátt fyrir góðan vilja lögreglunnar á Patreksfirði tók það þá 1 og hálfan tíma að komast á staðinn. Lögreglan í Búðardal var þó stödd nokkuð nærri. Einar segir að fyrir nokkrum árum, sem var fyrir hans tíð á staðnum, hafi lögreglan þurft að fara frá Patreksfirði til Brjánslækjar, og fara þaðan með Baldri til Stykkishólms og keyra landleiðina til Reykhóla.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira