Erlent

Vilja evrópska fuglaflensunefnd

Fuglaflensa hefur greinst í Grikklandi og beðið er niðurstöðu rannsókna á sýnum úr dauðum farfuglum í Króatíu. Sérfræðingar telja núna ómögulegt að koma í veg fyrir að flensan breiðist út um Evrópu, en markmiðið er að hindra að menn smitist af henni. Flensan mjakast nú til vesturs, eftir að hafa fundist í Tyrklandi og Rúmeníu. Grikkland bættist í hópinn í dag og Króatía gæti verið næst. Fólk er beðið um að halda ró sinni, en sérfræðingar minna um leið á að yfirvöldum beri skylda til að grípa til allra viðeigandi varúðarráðstafana. ESWI, samtök fjórtán alþjóðlegra vísindastofnana og sjö lyfjafyrirtækja funduðu um málið í dag og þar kom fram að full þörf væri á að mynda fuglaflensustarfshóp. Þótt mörg lönd hafi þegar sankað að sér bóluefnisbirgðum gegn inflúensu, þá er enn ekkert bóluefni til sem getur komið í veg fyrir smit úr fuglum í menn. Nú er líkt og menn haldi niðri í sér andanum, því enginn vill vera ásakaður um óþarfa dómsdagsspár og það að hræða borgarana að óþörfu - eins og er hafa einungis um sextíu manns látist úr fuglaflensu. Á hinn bóginn vilja stjórnmálamenn heldur ekki bera ábyrgð á því að hafa hunsað vísbendingar um yfirvofandi faraldur, ef hann brytist nú út. Á fundinum sagði einn fundarmaður að líkja mætti þessum faraldri við hryðjuverkárás og hann hvatti til þess að farið yrði varlega og að yfirvöld verði að grípa til viðeigandi aðgerða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×