Erlent

Snarpasti skjálftinn í heila öld

"Þetta var öflugasti jarðskjálfti sem hefur riðið yfir svæðið síðustu hundrað árin," sagði Qamar Uz Zaman, framkvæmdastjóri pakistönsku Jarðfræðistofnunarinnar, í viðtali á CNN um jarðskjálftann sem reið yfir hluta Pakistans, Indlands og Afganistans síðustu nótt. Íbúar pakistanska hluta Kasmír urðu verst úti í jarðskjálftanum sem að sögn Oxfam hjálparsamtakanna. Óttast er að þúsundir manna hafi látið lífið í skjálftanum sem mældist sjö komma sex á Richter kvarða og þurrkaði út heilu þorpin. Stjórnendur Oxfam segja brýnt að safna teppum og tjöldum fyrir vetraraðstæður því farið er að kólna verulega á skjálftasvæðunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×