Innlent

Lög um starfsemi starfsmannaleiga

Þing Alþýðusambands Norðurlands skorar á félagsmálaráðherra að sett verði lög um starfsemi starfsmannaleiga á íslenskum vinnumarkaði hið fyrsta. Jafnframt er skorað á Alþingi að bæta réttarstöðu starfsmanna leiganna og tryggt að af þeim verði greidd lögboðin gjöld. Segir í ályktun þings Alþýðusambandsins að ljóst sé orðið að erlent verkafólk fái í mörgum tilfellum lægri laun og lakari starfskjör en íslenskir kjarasamningar og lög geri ráð fyrir. Kvartanir verkalýðsfélaga hafi svo þau áhrif ein að skipt sé um starfsmenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×