Erlent

Ríkisstjórn Palestínu rekin

Palestínska þingið samþykkti í gær tillögu um að reka ríkisstjórn landsins fyrir aðgerðaleysi gagnvart ofbeldi við Gasa-ströndina eftir brottflutning Ísraelsmanna. Tillagan var lögð fram í kjölfar skýrslu þingnefndar þar sem fram kom hörð gagnrýni á störf bæði ríkisstjórnarinnar og lögreglu í landinu. Tillagan gerir ráð fyrir að Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palestínu, myndi nýja stjórn innan tveggja vikna. Geri hann það ekki verður lýst yfir vantrausti á hann, sem myndi neyða hann til að mynda nýja stjórn. Abbas þarf þó ekki að óttast um eigið starf því hann sigraði í lýðræðislegum kosningum í janúar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×